Thomas Alva Edison

Article on other languages:

Thomas Edison

Thomas Alva Edison (11. febrúar 184718. október 1931) var bandarískur uppfinningamaður, sem varð frægur á 19. öld fyrir fjölmargar uppfinningar sínar. Hann endurbætti ljósaperuna, símann, fann upp hljóðritun og kvikmyndun, smíðaði fyrsta kvikmyndaverið, stóð fyrir raflýsingu New York-borgar og þannig mætti lengi telja.

Edison var mjög vinsæll meðal almennings fyrir uppfinningar sínar, sem höfðu mikið gildi og gjörbreyttu daglegu lífi fólks. Bæði var þar um að ræða aukin þægindi eins og vegna raflýsingar og síma, sem og mikið skemmtigildi hljóðritana og kvikmynda. Á seinni hluta ævi sinnar var hann kallaður „Galdramaðurinn í Menlo Park“ og var þannig kenndur við bæ einn í New Jersey þar sem hann bjó um tíma og hafði rannsóknarstofur sínar. Í West Orange, sem einnig er í New Jersey, byggði hann fyrsta kvikmyndaver sögunnar. Það er enn til og gengur undir nafninu Svarta María. Edison var einnig mikið í fjölskyldulífi. Árið 1871 giftist hann konu að nafni Mary Stilwell en hún dó 13 árum seinna. Árið 1886 giftist hann 19 ára stúlku Mina Miller.

More about Thomas_Alva_Edison: alva biography edison thomas, alva edison picture thomas, alva edison story thomas, alva edison invention thomas, alva biografia de edison thomas, alva bulb edison light thomas,

This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.