Samtenging

Article on other languages:

Samtenging (skammstafað sem st.) er óbeygjanlegt smáorð sem tengir saman einstök orð, orðasambönd (t.d. hnífur og skeið, þetta er hnífur en hitt er skeið) eða setningar. Samtengingar eru ýmist eitt orð (einyrtar samtengingar) eða fleiri (fleiryrtar eða fleygaðar samtengingar). t.d. og - eða, svo - að, af því að, hvorki - né o.s.frv. Dæmi um einyrtar samtengingar eru t.d.:

  • Hann er hávaxinn og klár.
  • Við getum fengið pizzu eða pasta.

Og dæmi um fleiryrtar samtengingar eru:

  • Þetta er hvorki skemmtilegt fróðlegt.
  • Ef þér fannst þetta skemmtilegt þá getum við farið aftur.
  • Við getum annaðhvort farið í sund eða í keilu.

Efnisyfirlit

Flokkanir

Samtengingar skiptast í tvo aðalflokka eftir setningarhlutverkum, aðaltengingar og aukatengingar.

Aðaltengingar

Aðaltengingar tengja saman einstök orð eða setningarliði, tvær hliðstæðar aðalsetningar eða tvær eða fleiri aukasetningar.

Aukatengingar

Aukatengingar standa fremst í aukasetningu, t.d. hún sagði hún hefði misst af bílnum:

Mörg orð geta eftir stöðu sinni og merkingu tilheyrt samtengingum eða öðrum orðflokkum. Til dæmis eru orðin þegar, og, síðan ýmist samtengingar eða atviksorð; þegar er atviksorð þegar það merkir undireins, strax en annars samtenging; og er atviksorð þegar það merkir líka, einnig en annars samtenging; síðan er samtenging þegar hægt er að setja eftir í þess stað (t.d. margt hefur gerst síðan við hittumst) enn annars er það atvikorð og má þá setja eftir það í stað þess (t.d. ég hef ekki séð hann síðan).

Sjá einnig

Heimildir

This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.