Apple Inc.

Article in other languages:

Apple Inc.
Apple-logo.png
Rekstrarform Hlutafélag
Slagorð Óþekkt
Hjáheiti Óþekkt
Stofnað Fáni Bandaríkjana Kaliforníu (1. apríl 1976, sem Apple Computer, Inc.)
Staðsetning 1 Infinite Loop, Cupertino, Kaliforníu
Lykilmenn Steve Jobs, Steve Wozniak
Starfsemi Hugbúnaðargerð
Heildareignir Óþekkt
Tekjur US$19,3 milljarðar Green Arrow Up.svg
Hagnaður f. skatta US$2,12 milljarðar Green Arrow Up.svg
Hagnaður e. skatta US$1,73 milljarðar Green Arrow Up.svg
Eiginfjárhlutfall Óþekkt
Móðurfyrirtæki Óþekkt
Dótturfyrirtæki Óþekkt
Starfsmenn 17.787 í fullu starfi; 2.399 í hlutastörfum
Vefsíða www.apple.com

Apple Inc. (NASDAQAAPL, LSEACP, FWB: APC) er bandarískt raftækjafyrirtæki með höfuðstöðvar í Cupertino í Kaliforníu. Apple þróar, framleiðir, markaðssetur og selur m.a. borðtölvur, fartölvur, margmiðlunarspilara, síma, stýrikerfi, forrit og au kahluti í tölvur. Þekktustu vörumerki Apple eru Macintosh-einkatölvurnar sem komu á markað 1984 og margmiðlunarspilarinn iPod sem kom fyrst á markað 2001. Farsíminn iPhone hefur einnig náð miklum vinsældum frá því að hann kom á markað í júní 2007. Af öðrum vélbúnaði sem Apple framleiðir má nefna Apple TV sem tengir margmiðlunarsafn einkatölvunnar við sjónvarp og netþjónana Xserve. Stærsta hugbúnaðarafurð Apple er stýrikerfið Mac OS X, nýjasta útgáfa þess, „Snow Leopard“, kom út í lok ágúst 2009. iLife-pakkinn fylgir með öllum nýjum Apple-tölvum og inniheldur ýmis forrit sem varða einfalda vinnslu með ljósmyndir, kvikmyndir, tónlist og vefsíðugerð, svonefnd „lífstílsforrit“. Fyrir fagmenn á þessum sviðum býður Apple upp á öflugri forrit eins og Aperture (ljósmyndun), Final Cut Studio (kvikmyndir) og Logic Pro (tónlist). iWork-pakkinn inniheldur hefðbundinn skrifstofuhugbúnað, þ.e.: ritvinnsluforrit, töflureikni og glærusmið. Vafrinn Safari og tónlistarspilarinn iTunes eru ekki aðeins vinsæl forrit á Mac OS X heldur eru þau einnig í boði fyrir tölvur sem keyra Windows-stýrikerfið. Í gegnum iTunes er hægt að nálgast iTunes Store sem er vefverslun Apple með afþreyingarefni á borð við tónlist, sjónvarpsþætti, kvikmyndir, tónlistarmyndbönd, hugbúnað fyrir iPhone og iPod touch og hljóðbækur.

Efnisyfirlit

Saga

Apple var stofnað 1. apríl 1976 af Steve Jobs, Steve Wozniak og Ronald Wayne (fyrirtækið var gert að hlutafélagi 3. janúar 1977 án Wayne) í kringum Apple I tölvuna. Steve Wozniak handsmíðaði Apple I tölvurnar í stofunni hjá foreldrum Steve Jobs. Tölvurnar voru kynntar almenningi í Homebrew Computer Club sem var áhugamannafélag um tölvur sem starfaði í Kísildal. Alls voru smíðaðar 200 Apple I vélar sem innihéldu móðurborð (með örgjörva, vinnsluminni og skjákorti) og voru langt frá því að falla undir seinnitíma skilgreiningu á „einkatölvu“.

Jobs fékk tölvuverslunina „The Byte Shop“ til að kaupa 50 tölvur á 500 dali stykkið. Því næst pantaði hann íhluti af Cramer Electronics. Jobs tókst eftir ýmsum leiðum, m.a. með því að fá lánaða aðstöðu hjá vinum og ættingjum og með því selja persónulegar eigur, þ.á m. Volkswagen-rúgbrauðið sitt, að tryggja að nóg væri til af íhlutum á meðan Wozniak og Wayne handsmíðuðu tölvurnar.

Fyrirtækið hét Apple Computer Inc. fyrstu 30 árin. Þann 9. janúar 2007 var orðinu „Computer“ sleppt úr nafninu til þess að endurspegla breyttar áherslur þar sem fyrirtækið eiblíndi ekki lengur á einkatölvuna heldur einnig annarskonar tækjabúnað (iPod, iPhone og Apple TV) og sölu á afþreyingarefni.

Núverandi vöruframboð

Sjá einnig: Tímaröð Macintosh-tölva

Vélbúnaður

Mac mini tölva.

Apple setti á markað fyrstu Macintosh-tölvurnar árið 1984. Mac mini er einkatölva sem var sett á markaðinn í janúar 2005, hún er seld án ytri búnaðar á borð við skjá, lyklaborð og mús. iMac er borðtölva sem sett var á markaðinn árið 1998 en helsta einkenni hennar er að tölva og skjár eru sambyggð. Power Mac tölvunni var skipt út fyrir Mac Pro árið 2006, en hún notast við Intel Xeon 64-bita örgjörva. Xserve eru netþjónar frá Apple. Árið 2006 setti Apple á markaðinn MacBook, sem tók við af iBook-fartölvunni. MacBook er frekar dýr fartölva með Intel Core 2 Duo örgjörva og 13 tommu skjá. Þær er hægt að fá hvítar. MacBook Pro er öflugri fartölva með 13, 15 eða 17 tommu skjá og er gerð úr áli.

Árið 2001 setti Apple á markað tónlistarspilarann iPod. Nú selur Apple iPod touch (með snertiskjá), iPod classic, iPod nano og iPod shuffle. Apple selur einnig iPhone, sem er farsími með WiFi og Bluetooth og innbyggðum iPod og netvafra.

Þeir selja einnig Apple TV fyrir sjónvörp.

Tölvuforrit

Apple framleiðir sitt eigið stýrikerfi, Mac OS X. Þeir selja einnig ýmis tölvuforrit, til dæmis iLife (iDVD, iMovie, iPhoto, iTunes, iWeb og GarageBand) og iWork (Keynote, Pages og Numbers). Atvinnuforrit Apple eru Mac OS X Server, Aperture, Final Cut Studio, Logic Pro og Shake. Vefforrit Apple er .Mac.

Verslanir

Aðalgrein: Apple Store
Apple á Laugaveginum í Reykjavík.

Apple rekur einnig 180 verslanir í Bandaríkjunum, Japan, Bretlandi, Kanada og Ítalíu. Búðirnar innihalda flestar Apple hluti og einnig vörur frá öðrum framleiðendum. Við þær er einnig tengt verkstæði fyrir Apple-vörur. Apple hefur meira en 20.000 starfsmenn um allan heim.

Apple VAD er umboðsaðili Apple á Íslandi og rekur eina verslun í Reykjavík.

More about Apple_Inc.: apple computer inc, apple computer inc mission statement, apple computer inc history, apple inc mission statement, apple comp inc, apple inc history, apple apple computer confidential inc real story, apple computer inc stock symbol, apple business computer contact inc list,

Questions for article: apple inc history, apple inc mission statement, krzysztof bilinski, mission statement apple, apple computer history, apple ipod mission statement, apple tölva, history of apple computer, history of apple of computer, ipod епл, logo mac- operativni sistem

This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.


IHS Europe: Infrared Heating Systems for Home and Business.